Leitin að barninu í gjánni
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 3.100 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 3.100 kr. |
Um bókina
Guðbergur Bergsson er löngu kunnur fyrir frumlegan skáldskap og slær hér enn á nýja strengi í nýrri bók: Leitin að barninu í gjánni – barnasaga ekki ætluð börnum. Í þessari ljúfu og táknrænu frásögn, sem sannarlega er skrifuð fyrir fullorðna, segir af ferðalagi barna, skólastjóra og kennslukonu um undarlega stigu. Leiðin liggur meðal annars inn um leynidyr í kjallara skólans en undir niðri kraumar önnur og áleitnari saga. Hún fjallar ekki síst um ímyndunaraflið sem stundum er tekið frá ungu fólki og þá ögrun sem felst í því að takast á við sjálfan sig. Ingi Jensson myndskreytir.
Guðbergur hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, þ.á m. Norræn bókmenntaverðlaun sænsku akademíunnar og Íslensku bókmenntaverðlaunin í tvígang. Auk þess er hann einn afkastamesti þýðandi okkar úr spænsku og hefur átt stóran þátt í að kynna spænsku- og portúgölskumælandi höfunda hér á landi. Hann hefur einnig skrifað greinar um bókmenntir, listir og þjóðfélagsmál í dagblöð og tímarit. Margar bækur Guðbergs hafa verið þýddar á önnur mál og hvarvetna hlotið afar góðar viðtökur.
3 umsagnir um Leitin að barninu í gjánni
Kristrun Hauksdottir –
„ … bráðskemmtileg og bráðfjörug bók.“
Gauti Kristmannsson / Víðsjá
Kristrun Hauksdottir –
„… allegoría af bestu sort … bráðfyndin allegorísk barnasaga handa fullorðnum.“
Kristján Hrafn Guðmundsson / DV
Kristrun Hauksdottir –
„…allt í senn, einstaklega fyndin, áleitin og óþægileg.“
Fríða Björk Ingvarsdóttir / Morgunblaðið